Ólympíuhópur ÍSÍ
Ólympíuleikarnir fara fram í París í Frakklandi 26. júlí til 11. ágúst 2024.
Neðangreindir einstaklingar mynda Ólympíuhóp ÍSÍ. Þeir hafa nú þegar tryggt sér þátttökurétt á leikunum eða eru mjög líklegir til að tryggja sig á leikana á næstu misserum. Æfingar og almennur undirbúningur stendur sem hæst hjá öllum og hópurinn hittist reglulega, sem er hluti af hinum félagslega og andlega undirbúningi fyrir leikana sjálfa.
Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ, heldur utan um hópinn.
Anton Sveinn McKee, bringusund
Tryggði sér þátttökurétt í júlí 2023 á Ólympíuleikana í París 2024.
30 ára og syndir fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar.
Byrjaði mjög ungur að synda og hefur synt alla tíð.
Næstu mót: Engin mót staðfest.
Baldvin Þór Magnússon, 5000m hlaup
25 ára og æfir erlendis.
Byrjaði að hlaupa 12 ára.
Næstu mót: Lang Laufnacht Þýskalandi 11.maí, Trond Mohn Games Noregi 22. maí og MÍ Íslandi 27. júní.
Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar
22 ára og keppir fyrir hönd Lyftingafélags Reykjavíkur.
Byrjaði að æfa ólympískar lyftingar árið 2020.
Næstu mót: Engin mót fram að Ólympíuleikum.
Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarp
24 ára og æfir með ÍR.
Byrjaði 9 ára í frjálsum íþróttum.
Næstu mót: 18. -19. maí NM utanhúss, 7. -12. júní EM utanhúss, 22. júní Smáþjóðameistaramótið, 28. -30. júní MÍ.
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut
30 ára æfir á Íslandi en einnig mikið erlendis.
Byrjaði að æfa þríþraut árið 2017.
Næstu mót: World Series 18. maí.
Guðni Valur Guðnason, kringlukast
28 ára æfir með ÍR.
Byrjaði að æfa kringlukast árið 2014.
Næstu mót: NM Malmö/Svíþjóð 18. - 19. maí.
Hákon Þór Svavarsson, haglabyssuskotfimi
45 ára æfir með Skotíþróttafélagi Suðurlands.
Byrjaði að æfa 21 árs.
Næstu mót: EM Ítalíu 15. - 27. maí og heimsbikarmót 10. - 19. júní.
Hilmar Örn Jónsson, sleggjukast
28 ára og æfir með FH.
Byrjaði 12 ára að æfa frjálsar og 15 ára í sleggjukasti.
Næstu mót: NM Malmö/Svíþjóð 18. - 19. maí.
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, taekwondo
29 ára og æfir með Björk.
Byrjaði árið 2002 að æfa taekwondo.
Næstu mót: EM 9. - 12. maí og Lux Open 8. - 9. júní.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir, skriðsund
23 ára og æfir með Aalborg svömmeklub.
Byrjaði mjög ung að synda og hefur synt alla tíð.
Næstu mót: Engin mót staðfest.
Svana Bjarnason, klifur
32 ára og æfir með Blackout í Frakklandi.
Byrjaði að klifra um 10 ára aldurinn.
Næstu mót: Shanghai 16. -17. maí, Búdapest 20. -21. júní, Þýskaland 26. -30. júní og Frakkland 13. -14. júní og 17. -18. júní.
Thelma Aðalsteinsdóttir, áhaldafimleikar
23 ára og æfir með Gerplu.
Byrjaði að æfa 3 ára.
Næstu mót: Engin mót staðfest
Valgarð Reinhardsson, áhaldafimleikar
27 ára og æfir með Gerplu.
Byrjaði að æfa 5 ára.
Næstu mót: Engin mót staðfest