Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

2019 Svartfjallaland

Smáþjóðaleikar fóru fram í Svartfjallalandi 27. maí-1. júní 2019. Keppnisgreinar voru frjálsíþróttir, sund, júdó, skotíþróttir, tennis, borðtennis, karfa, blak, strandblak og boules.
 
 
 
30.05.2019

Fimm íslensk gullverðlaun á keppnisdegi tvö

Fimm íslensk gullverðlaun á keppnisdegi tvöFrábærum keppnisdegi er lokið í frjálsíþróttum á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi þar sem Íslendingar unnu fimm gullverðlaun og eitt silfur. Eftir daginn er Ísland komið á toppinn með sex gullverðlaun, fimm silfur og tvö brons. Í öðru sæti er Lúxemborg með fimm gull, fimm silfur og þrjú brons.
Nánar ...
30.05.2019

Borðtenniskeppni í tvíliðaleik lokið

Borðtenniskeppni í tvíliðaleik lokiðÍ dag fór fram tvíliðaleikur í borðtennis á Smáþjóðaleikunum. Stella Karen Kristjánsdóttir og Agnes Brynjarsdóttir spiluðu kvennamegin og Magnús Gauti Úlfarsson og Magnús Jóhann Hjartarsson spiluðu karlamegin. Bæði pörin duttu úr keppni í riðlunum.
Nánar ...
30.05.2019

Góð stemmning í kvennalandsliðinu í körfu

Góð stemmning í kvennalandsliðinu í körfuStarfsmaður ÍSÍ hitti Helenu Sverrisdóttur og Sigrúnu Björgu Ólafsdóttur leikmenn kvennalandsliðsins í körfuknattleik eftir leik liðsins á móti Lúxemborg í dag þar sem Ísland vann góðan sigur með 76 stigum gegn 48.
Nánar ...
30.05.2019

Skemmtilegir endurfundir

Skemmtilegir endurfundirJórunn Harðardóttir skotíþróttakona er mætt á sína sjöundu Smáþjóðaleika. Í ár tekur hún þátt í loftskammbyssu og loftriffli kvenna. Hún endaði í 9. sæti í dag í loftskammbyssu með 539 stig og komst ekki í úrslit. Hún keppir í loftriffli á morgun.
Nánar ...
30.05.2019

Vantaði herslumuninn á móti Lúxemborg

Vantaði herslumuninn á móti LúxemborgKarlalandslið Íslands í blaki mætti Lúxemborg í dag á Smáþjóðaleikunum. Fyrir leikinn hafði íslenska liðið tapað tveimur leikjum á móti Svartfjallalandi 3:1 og San Marínó 3:0. Lúxemborg vann Mónakó 3:1 og tapaði fyrir Svartfjallalandi 3:0.​
Nánar ...
30.05.2019

Blakstelpurnar góðar í hörkuleik

Blakstelpurnar góðar í hörkuleikKvennalandsliðið í blaki spilaði sinn þriðja leik í dag á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Fyrir hafði liðið tapað 3:0 gegn gestgjöfunum og unnið San Marínó 3:0. Lúxemborg tapaði 3:0 fyrir San Marínó og vann Liechtenstein 3:1.
Nánar ...
30.05.2019

Ásgeir sigurvegari í loftbyssu

Ásgeir sigurvegari í loftbyssu Keppendur í loftskammbyssu hófu keppni í dag, þau Ásgeir Sigurgeirsson, Jórunn Harðardóttir og Ívar Ragnarsson. Íslensku karlarnir komust áfram úr undankeppninni í loftskammbyssu og þar með í 8 manna úrslit. Ásgeir Sigurgeirsson varð annar inn í úrslit með 576 stig og Ívar Ragnarsson þriðji með 561 stig, sem er glæsilegur árangur hjá íslensku strákunum.
Nánar ...
30.05.2019

Birkir sigraði spennandi leik

Birkir sigraði spennandi leikBirkir Gunnarsson keppti við Omar Sudzuka frá Möltu í morgun í 16. liða úrslitum í tenniskeppni Smáþjóðaleikanna. Leikurinn var æsispennandi. Birkir tapaði fyrstu lotu, en vann síðan næstu tvær. Leikurinn fór 2:1. ​Birkir keppir aftur einliðaleik seinnipartinn í dag.
Nánar ...
30.05.2019

Dagskrá 3. keppnisdags á Smáþjóðaleikum

Dagskrá 3. keppnisdags á SmáþjóðaleikumForvitnilegt verður að sjá hvort að sólin láti sjá sig á 3. keppnisdegi Smáþjóðaleikanna á morgun, fimmtudaginn 30. maí, Hvort sem það gengur eftir eða ekki þá heldur keppnin áfram hér á leikunum og margir spennandi viðburðir á dagskrá.
Nánar ...
29.05.2019

Samantekt frá öðrum degi Smáþjóðaleika

Samantekt frá öðrum degi SmáþjóðaleikaÍslenska karlalandsliðið í körfuknattleik vann viðureign sína gegn Möltu í dag, 80:76, eftir framlengingu. Stigahæstur í dag var Elvar Már Friðriksson með 33 stig. Tók hann 7 fráköst. Kristinn Pálsson var með 17 stig, þar af 4 af 8 í þriggja og Gunnar Ólafsson bætti við 9 stigum og Dagur Kár Jónsson var með 7 stig.​
Nánar ...
29.05.2019

Sýndu mikinn karakter í framlengingu

Sýndu mikinn karakter í framlenginguÍslenska karlalandsliðið í körfuknattleik vann viðureign sína gegn Möltu í dag, 80:76. Íslendingarnir byrjuðu vel og voru 22:14 yfir eftir fyrsta leikhluta og 34:21 í hálfleik. Seint í þriðja leikhluta var Ísland 49:30 yfir en Malta setti síðustu 8 stigin og minnkaði muninn. Þeir héldu áfram að sækja í framhaldinu og voru komnir með nokkurra stiga forskot þegar rúmar þrjár mínútur lifðu af leiknum. Ísland sýndi mikinn karakter með því að koma sér inn í leikinn aftur og voru þremur stigum yfir þegar rúmar 6 sekúndur voru eftir. Malta jafnaði og lokaskot Íslands geigaði og því þurfi að framlengja.
Nánar ...
29.05.2019

Flott frammistaða hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik

Flott frammistaða hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleikÍslenska kvenna­landsliðið í körfuknatt­leik beið lægri hlut fyr­ir sterku liði Svart­fjalla­lands 81:73 í öðrum leik sín­um á Smáþjóðal­eik­un­um í Svar­tfjalla­landi í dag. Íslenska liðið átti góðan leik gegn svartfellska liðinu. Staðan var jöfn í hálfleik 35:35.
Nánar ...