Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ

28.08.2014Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna úthlutunar ársins 2014. Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 19. september.

Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður með framlagi bankans árið 2007. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Er nú verið að úthluta í tíunda sinn úr sjóðnum.

Nánar er hægt að lesa sér til um sjóðinn og nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu ÍSÍ, sjá hér. Með fréttinni fylgir mynd frá síðustu úthlutun sjóðsins fyrir árið 2013. Á myndinni má sjá styrkþega eða fulltrúa þeirra auk Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka, Lárusar L. Blöndal forseta ÍSÍ, Helgu Magnúsdóttur formann sjóðsstjórnar og Kristínu Rós Hákonardóttur sem sæti á í stjórn sjóðsins.