Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

EYOF 2017 - öðrum keppnisdegi lokið

25.07.2017

Keppni Íslendinga hófst í sundlauginni þar kepptu Patrik Viggó Vilbergsson og Viktor Forafonov í undanriðlum 400 metra skriðsunds. Patrik Viggó synti á 4:18,10 og Viktor á 4:13,06, enduðu þeir í 25. og 29. sæti og komust því ekki áfram í milliriðla.

Í einliðaleik drengja í tennis keppti Brynjar Sanne Engilbertsson við breskan dreng. Leikurinn endaði með tapi í tveimur settum. Sofia Sóley Jónasdóttir keppti jafnframt í einliðaleik, þar lék hún við stúlku frá Tyrklandi og tapaði í tveimur settum 6-2 og 6-3. Í tvíliðaleik léku Georgína og Sofía Sóley við stúlkur frá Sviss og töpuðu í tveimur settum 6-2 og 6-1.

Í júdó keppti Alexander Heiðarsson í -55 kg flokki við dreng frá Slóveníu. Eftir hörku viðureign tapaðist glíman og var Alexander þar með úr leik.

Í liðakeppni í fimleikum enduðu strákarnir í 17. sæti. Hæstu einkunn íslensku keppendanna fékk Martin Bjarni  67.35, Breki var með 58.15 og Leó 57.35.

Í frjálsum keppti Birna Kristín Kristjánsdóttir í úrslitum langstökksins. Þar stökk hún 5.37 sem tryggði henni 11 sætið. Í úrslitum 100 metra hlaupsins hljóp Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir á tímanum 11.78 (+6.0) sem skilaði henni í 5. sæti.

Í handknattleik mættu okkar drengir liði Frakklands. Lokaniðurstaðan varð 31 - 34 fyrir Frakklandi. Frakkar höfðu forustu mestan hluta leiksins en okkar drengir voru aldrei langt undan. Þegar mínúta var eftir munaði einu marki á liðunum, Frakkar skoruðu tvö síðustu mörkin og tryggðu sér sigurinn. Markahæstir í íslenska liðinu voru þeir Haukur Þrastarson með 9 mörk, Dagur Gautason með 5 og Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 4.

Á morgun miðvikudag mun Guðbjörg Jóna hefja keppni í undanriðlum 200 metra hlaups og Helga Margrét stekkur þrístökk. Komið er að keppni stúlkna í liðakeppni í áhaldafimleikum auk þess sem handknattleikslið drengja spilar sinn síðasta leik í riðlakeppninni við Spánverja.

Svipmyndir frá keppni dagsins fylgja fréttinni - fleiri myndir má finna á myndasíðu ÍSÍ, sjá hér.

 

Myndir með frétt