Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Borðtennissamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ

26.10.2017Borðtennissamband Íslands (BTÍ) hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ársins 2017. Um er að ræða styrk að upphæð 400.000 kr. sem bætist við fyrri úthlutun til sambandsins, en sambandið hlaut styrk að upphæð 600.000 kr. í fyrri úthlutun ársins úr Afrekssjóði ÍSÍ.

Hjá sambandinu er verið að horfa til frekari uppbyggingar á afreksstarfinu og  stækkun afrekshópa.  Stærsti þátturinn þar er að efla  þjálfaramenntun til að auka getu afreksefna innan hreyfingarinnar.  Sem liður í þeirri áætlun var nú í september sl. haldið þjálfaranámskeið á Íslandi í samstarfi við Evrópska borðtennissambandið (ETTU) fyrir íslenska þjálfara hjá aðildarfélögum BTÍ.  Tveir íslenskir þjálfarar með ITTF 1 þjálfaragráðu halda svo til Möltu í lok október mánaðar til að klára ITTF 2 þjálfaragráðuna og verða þeir þeir fyrstu með þá gráðu hér á landi.  Verið er að endurskipuleggja þátttöku sambandsins í alþjóðlegu starfi og velja mót og æfingabúðir sem henta þeim leikmönnum sem eru í afrekshópum sambandsins. Styrkur Afrekssjóðs ÍSÍ hjálpar til við að efla enn frekar það afreksstarf sem er í gangi innan sambandsins sem og undirbúning og þátttöku í alþjóðlegum verkefnum.

Á myndinni má sjá þau Lilju Sigurðardóttur, formann Afrekssjóðs ÍSÍ, Andra Stefánsson, sviðsstjóra Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, Ingimar Ingimarsson, formann BTÍ og Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur, ritara BTÍ.

Myndir með frétt