Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Hjólað í vinnuna

14.05.2018

Hjólað í vinnuna er nú í fullum gangi, en keppninni lýkur þann 22. maí. Vert er að benda á að hjólaðar vegalengdir til og frá vinnu er ekki eingöngu það sem má skrá í keppninni heldur telst allur virkur ferðamáti með, eins og ganga, hlaup, hjólabretti, línuskautar og strætó.

Vefsíðu Hjólað í vinnuna má sjá hér, en þar má nálgast allar upplýsingar um verkefnið.

Einnig má fylgjast með gangi mála á facebook-síðu Hjólað í vinnuna.

Þátttakendum Hjólað í vinnuna er bent á að hægt er að nota Strava til að halda utan um sínar ferðir og vegalengdir og hlaða upplýsingunum beint inn í skráningarkerfið. 

ÍSÍ minnir alla þátttakendur á skráningarleik Hjólað í vinnuna sem og liðstjóraleik, þar sem reiðhjólaverslunin Örninn gefur góða vinninga. Myndaleikur Hjólað í vinnuna er í boði Nutcase á Íslandi. Hér má finna allt um leikina