Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

YOWG Lausanne 2020 - Í beinni

09.01.2020
 
Vetrarólympíuleikar ungmenna (YOWG) verða settir í Lausanne í Sviss í kvöld. Íslensku þátttakendurnir í alpagreinum eru mættir á svæðið og æfa fyrripartinn og í kvöld er svo komið að setningarathöfninni. Við setninguna mun Aðalbjörg Lillý Hauksdóttir keppandi í alpagreinum vera fánaberi íslenska hópsins. Hægt verður að fylgjast með setningarhátíðinni á Ólympíurásinni kl. 19.00-20.30 að íslenskum tíma. Með því að smella HÉR má finna yfirlit yfir þá keppnisviðburði sem sýndir verða í beinni útsendingu á Ólympíurásinni meðan á leikunum stendur og hægt er að horfa á Ólympíurásina hér.
 
Um Ólympíuleika ungmenna
Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára. Skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikarnir. Hugmyndina á Jacques Rogge fyrrverandi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001, en fyrstu leikarnir voru sumarleikar sem haldnir voru í Singapore 2010. Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram 2012 í Innsbruck í Austurríki og aðrir leikarnir í Lillehammer í Noregi 2016. Ísland hefur í bæði skiptin sent þátttakendur á leikana.
 
Leikarnir standa yfir frá 9. - 22. janúar 2020. Á þeim 13 dögum sem keppnin fer fram eru 81 viðburður á dagskrá og er um að ræða átta keppnisstaði. 1.880 íþróttamenn, þar sem kynjahlutfall er jafnt, munu etja kappi á leikunum. Verða þetta fyrstu vetrarleikarnir á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar með jafnt kynjahlutfall keppenda. Í fyrsta sinn verður leikunum skipt upp í tvö tímabil og þátttakendur því ekki allir á staðnum á sama tíma. Keppni íslenska hópsins raðast þannig niður að alpagreinar eru í fyrri hluta leikanna en skíðaganga í þeim seinni.
 
Vefsíðu leikanna má sjá hér.
 
Þátttakendur Íslands á Vetrarólympíuleikum ungmenna 2020 eru:
 
Alpagreinar:
Aðalbjörg Lillý Hauksdóttir, keppandi
Gauti Guðmundsson, keppandi
Grímur Rúnarsson, flokksstjóri/þjálfari
Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir, þjálfari
 
Skíðaganga:
Einar Árni Gíslason, keppandi
Linda Rós Hannesdóttir, keppandi
Vadim Gusev, flokksstjóri/þjálfari
Sigrún Anna Auðardóttir, þjálfari
 
Aðalfararstjóri íslenska hópsins er Örvar Ólafsson.