Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Einn greindist jákvæður í íslenska hópnum

05.02.2022

Sturla Snær Snorrason, keppandi í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Peking, hefur greinst jákvæður með COVID-19.

Allir þátttakendur fara daglega í PCR-Próf og er fylgst mjög vel með öllum sem koma að leikunum. Sturla Snær fór eins og aðrir íslensku þátttakendurnir í PCR-próf í morgun, en fann fyrir einkennum á æfingu og ákvað að halda sig til hlés og fara jafnframt í annað PCR-próf.

Í framhaldinu kom í ljós að bæði prófin gáfu jákvæða niðurstöðu og var hann fluttur í einangrun í Ólympíuþorpinu þar sem hann verður næstu daga. Patrick Renner, þjálfari Sturlu Snæs, er jafnframt kominn í sóttkví en þetta smit hefur ekki áhrif á aðra í íslenska hópnum eins og staðan er núna.

Ekki er vitað hvar eða hvenær Sturla Snær smitaðist, en allir þátttakendur hafa gætt vel að sóttvörnum undanfarna daga og vikur og grímuskylda er í gildi á Vetrarólympíuleikunum, hvort heldur í Ólympíuþorpunum eða á keppnisstöðum.

Það á eftir að koma í ljós hversu fljótt Sturla Snær jafnar sig af veikindunum en hann er skráður til keppni í tveimur greinum á leikunum. Keppni í stórsvigi fer fram sunnudaginn 13. febrúar og keppni í svigi miðvikudaginn 16. febrúar. Reglur leikanna gefa möguleika á því að keppendur geti tekið þátt um leið þeir geta framvísað nokkrum neikvæðum PCR-prófum í röð og þar sem enn er töluvert í að þessar keppnisgreinar fari fram má telja líklegt að Sturla Snær nái að keppa á leikunum. Þó verður að meta framvindu næstu daga.