Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ráðstefna um lyfjamál

13.01.2017 14:31

Í tengslum við WOW Reykjavik International Games 2017 standa Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir tveimur ráðstefnum um íþróttatengd málefni í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.

Fyrri ráðstefnan verður um lyfjamál í íþróttum þar sem þrír einstaklega áhugaverðir fyrirlesarar munu flytja erindi. Viðburðinn má finna hér á facebook

Á meðal fyrirlesara eru hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen sem viðurkenndi stórfellda lyfjamisnotkun meðan á ferlinum stóð og Hajo Seppelt, rannsóknarblaðamaður sem gerði heimildamyndir sem þóttu sanna skipulagt lyfjamisferli í Rússlandi.

Dagskrána má sjá hér á vefsíðu RIG.

Verðið á hvora ráðstefnu er 4.900 krónur og er kvöldverður innifalinn. Ef báðar ráðstefnur eru keyptar í einu er verðið 8.900 krónur. Skráning fer fram hér.

Reykjavíkurleikarnir (WOW Reykjavik International Games 2017) eru fjölgreina afreksíþróttamót sem haldið verður í 10. sinn árið 2017. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ, íþróttafélögin í Reykjavík og dyggum samstarfsaðilum, standa að leikunum. Keppni er frá 26. janúar til 4. febrúar og fer að mestu leyti fram í Laugardalnum og nágrenni hans. Reikna má með að á fimmta hundrað erlendra gesta frá fjölmörgum löndum taki þátt í leikunum í ár ásamt um 2.000 íslenskum íþróttamönnum. Glæsileg hátíðardagskrá verður á báðum keppnishelgum og margt spennandi að sjá.

Facebook-síða Reykjavíkurleikanna er RIG - WOW Reykjavik International Games.

Til baka