Umhverfismál
ÍSÍ skal í samvinnu við sambandsaðila sína, vinna að því að gera starf íþróttahreyfingarinnar eins umhverfisvænt og kostur er. Íþróttastarf þarf að fara fram í sátt við náttúruna og hafa jákvæð áhrif á nánasta umhverfi.
Markmið:
- Að vinna að markmiðum Ólympíuhreyfingarinnar í umhverfismálum.
 - Að starf íþróttafélaga sé í sátt við umhverfið.
 - Að auka þekkingu innan íþróttahreyfingarinnar á sviði umhverfismála er varða íþróttastarfið.
 -  Að stuðla að aukinni útiveru í íþróttalegum tilgangi og vitund fyrir náttúru landsins.
 - Leiðir:
 - Útgáfa fræðsluefnis um umhverfismál er varða íþróttastarf.
 - Safna upplýsingum um umhverfismál á sviði íþrótta.
 - Annast samstarf við stjórnvöld og félög er starfa að skyldum málefnum.
 - Veita ráðgjöf og aðstoða sambandsaðila við framkvæmd verkefna á sviði umhverfismála.