Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Haukur Clausen

Haukur Clausen var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ á 75. Íþróttaþingi ÍSÍ 9. október 2021.

Haukur Clausen fæddist 8. nóvember 1928, hann var eineggja tvíburabróðir Arnar Clausen sem einnig var frjálsíþróttamaður. Þeir bræður, sem voru alla tíð mjög nánir, voru einna fremstir íslenskra íþróttamanna á gullöld íslenskra frjálsíþrótta fyrir og um 1950. Þeir voru ÍR-ingar og fóru mikinn í landsliði Íslands í frjálsíþróttum á keppnisferlinum, sem var reyndar allt of stuttur að flestra mati.

Haukur varð Norðurlandameistari í 200 metra hlaupi árið 1947, þá aðeins 18 ára gamall, er hann hljóp á nýju Íslandsmeti, 21,9 sek. Hann keppti á Ólympíuleikunum í London1948 og varð þrettándi í 100 metra hlaupi. Á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Brussel 1950 komst hann í úrslit í 100 metra hlaupi og varð í fimmta sæti. Sumarið 1950 setti hann Norðurlandamet í 200 metra hlaupi, 21,3 sek. Það var besti tími ársins í Evrópu og stóð Norðurlandametið í sjö ár en það var einnig Íslandsmet sem stóð í 27 ár. Haukur átti allmörg Íslandsmet í ýmsum frjálsíþróttagreinum.

Haukur lést 1. maí 2003.

Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Hauk Clausen í Heiðurshöll ÍSÍ.