Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Fyrirmyndarhéruð ÍSÍ

Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ, fyrst allra íþróttahéraða, í nóvember 2017.

Viðurkenningin rann úr gildi í nóvember 2021 en UMSE vinnur að endurnýjun hennar.

Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ í mars 2019. 

Viðurkenningin rann úr gildi í mars 2023 en UMSS vinnur að endurnýjun.

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga (USVH) hlaut fyrst viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ árið 2019. USAH hlaut svo endurnýjun viðurkenningarinnar í desember 2023.

Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ í desember 2019. 



Íþrótttabandalag Reykjavíkur hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ 19. desember 2019.

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ í desember 2019, til fjögurra ára. ÍBH hlaut svo endurnýjun viðurkenningarinnar í desember 2023.

Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ í mars 2020.

 

Héraðssamband Vestfirðinga (HSV) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ 19. maí 2021.

Íþróttabandalag Akraness (ÍA) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ í júní 2020.

 

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga (USAH) hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarhérað ÍSÍ 23. mars 2023.