Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Lífshlaupið

Vefsíða Lífshlaupsins er lifshlaupid.is
Hér má sjá Facebook-síðu Lífshlaupsins

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa og allra landsmanna.

Á vefsíðu Lífshlaupsins er að finna upplýsingar um fyrirkomulag og reglur keppninnar ásamt öðrum fróðleik.

Þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í: 

  • Grunnskólakeppni fyrir, 15 ára og yngri, tvær vikur í febrúar.
  • Framhaldsskólakeppni, fyrir 16 ára og eldri, tvær vikur í febrúar.
  • Vinnustaðakeppni, þrjár vikur í febrúar.
  • Einstaklingskeppni, þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.

ÍSÍ hvetur alla til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, þ.e. í frítíma, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnum í a.m.k. 30 mínútur á dag.

Myndir frá Lífshlaupinu má sjá á myndasíðu ÍSÍ hér.