Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23.03.2023 - 23.03.2023

Ársþing HSK 2023

Ársþing Héraðsambandsins Skarphéðins (HSK)...
21

Íþróttamiðstöðin í Laugardal

Í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal eru til húsa flest öll sérsambönd ÍSÍ ásamt fjölmörgum aðilum sem tengjast íþróttahreyfingunni.

Íþróttamiðstöðin skiptist í fjögur hús.

 
Hús 1.
Í þessu húsi er Íþróttabandalag Reykjavíkur með skrifstofur sínar.  Auk þess er Atlas Endurhæfing með aðstöðu í húsinu.
 
Hús 2.
Á jarðhæð er veitingastaðurinn Café-Easy.  Á hæð 2 er Handknattleikssamband Íslands til húsa og á efstu hæð eru skrifstofur Golfsambands Íslands, Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands og Akstursíþróttasambands Íslands.
 
Hús 3.
Á hæð 2 eru nokkrir aðilar með skrifstofur, þar á meðal Körfuknattleikssamband Íslands, Taekwondosamband Íslands, Landssamband hestamannafélaga, Siglingasamband Íslands og nuddstofa.  Á hæð 3 eru fundarsalir ÍSÍ og á hæð 4 eru höfuðstöðvar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
 
Hús 4.
Á hæð 2 eru skrifstofur Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, eða Lottó og 1X2.  Á hæð 3 og 4 eru síðan skrifstofur sérsambanda.