Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
5

Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

06.05.2014Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 3. maí síðastliðinn.  Viðurkenningin var afhent í Síldarmynjasafninu á Siglufirði þar sem Skíðafélagið var með móttöku í kjölfar fyrsta skíðamóts sem haldið hefur verið á fjallaskíðum á Íslandi.  Það var Viðar Sigurjónsson Skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti Brynju Hafsteinsdóttur formanni Skíðafélagsins viðurkenninguna um borð í gömlum síldarbát sem staðsettur er í miðju safninu og stóðu aðrir viðstaddir á gamalli bryggju sem báturinn "lá" við.  Þess má geta að fyrir liggur samþykkt frá ársþingi UÍF fyrir tveimur árum að öll aðildarfélög UÍF verði orðin Fyrirmyndarfélög ÍSÍ árið 2015.  Á myndinni eru þau Brynja Hafsteinsdóttir og Viðar Sigurjónsson.