Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
15

Erla áfram formaður HSS – Óskar fékk silfurmerki ÍSÍ

14.06.2025

 

Ársþing Héraðssambands Strandamanna (HSS) var haldið þann 10. júní. Þar var Erla Björk Jónsdóttir, formaður, endurkjörin. Á þinginu var Óskar Torfason heiðraður með silfurmerki ÍSÍ.

Aðildarfélög HSS skiptast á að halda ársþingin og að þessu sinni fór það fram í félasgheimilinu í Trékyllisvík í Árneshreppi þar sem Ungmennafélagið Leifur heppni er með aðsetur. Um 30 fulltrúar aðildarfélaga HSS sóttu þingið ásamt fulltrúum frá ÍSÍ og UMFÍ.

Erla Björk Jónsdóttir tók við formannsembætti HSS í fyrra og var hún endurkjörinu á þinginu. Þrjú komu ný inn í stjórn; Valgeir Kristjánsson, Sigrún Sverrisdóttir og Rósmundur Númason, og þá situr Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir áfram.

Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Hafsteinn Pálsson, meðstjórnandi í framkvæmdastjórn og formaður Heiðursráðs ÍSÍ, sóttu þingið fyrir hönd ÍSÍ og fluttu ávörp. Það gerði Birna Hannesdóttir, svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Vestfjörðum einnig en hún var fulltrúi UMFÍ á þinginu.

Á ársþinginu var Óskar Albert Torfason heiðraður með silfurmerki ÍSÍ.
Óskar hefur unnið að íþróttamálum á Ströndum frá unga aldri, fyrst hjá Umf. Leifi heppna og svo hjá Umf. Neista frá árinu 1980. Einnig hefur hann stutt ötullega starf Skíðafélags Strandamanna frá stofnun 1999. Óskar hefur verið í stjórn HSS í mörg ár. Öll hans vinna hefur verið unnin í sjálfboðavinnu, hvort sem er stjórnarstörf, þjálfun eða vinnu við framkvæmdir á íþróttasvæðum.

Sérstaka viðurkenning hlaut Jóhann Björn Arngrímsson. Hann var að láta af störfum eftir að hafa verið meira og minna í stjórn HSS síðan árið 1991. Með elju, skuldbindingu og ósérhlífni hefur hann lagt sitt af mörkum í þágu HSS og íþróttahreyfingarinnar. „Hann hefur fengið allar viðurkenningar sem hægt er að fá, gullmerki ÍSÍ og UMFÍ, og því vafðist þetta fyrir okkur. Við vildum gefa honum eitthvað sérstakt,“ segir hún á vef UMFÍ. Lendingin varð að gefa honum einkar fallegan glerskjöld með Ægishjálminum, sem er merki HSS.

Ragnar Kristinn Bragason hlaut starfsmerki UMFÍ. Hann hefur unnið ötullega að íþróttastarfi innan HSS frá unga aldri, sem í stjórn sambandsins í mörg ár, aukið samheldni og stuðlað að bættri heilsu og velferð Strandamanna. Hann var fyrst í stjórn hjá Umf. Hvöt en síðar verið í stjórn og frá stofnun Skíðafélags Strandamanna verið þjálfari. Þar hefur hann unnið af öllum mætti að uppbyggingu félagsins. Öll hans vinna hefur verið unnin í sjálfboðavinnu, stjórnarstörf, þjálfun, ferðalög með keppendur og allar framkvæmdir.

Myndir með frétt