Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
7

Handknattleiksfélag Kópavogs - Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

05.02.2026

 

Handknattleiksfélag Kópavogs (HK) fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ föstudaginn 30. janúar. Veitt var viðurkenning fyrir aðalstjórn og sex deildir félagsins, þ.e. bandýdeild, blakdeild, borðtennisdeild, dansdeild, handknattleiksdeild og knattspyrnudeild.   

Sigurjón Sigurðsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Jón Reynir Reynisson sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ afhentu Sveinbirni Sveinbjörnssyni framkvæmdastjóra félagsins viðurkenninguna. HK varð 56 ára 26. janúar sl. en það var stofnað árið 1970 þegar átta drengir úr Kársnesskóla ákváðu að stofna handknattleiksfélag í Kópavogi. Síðan hefur félagið heldur betur vaxið og dafnað.   

Á myndinni eru frá vinstri þeir Alexander Arnarsson úr aðalstjórn HK, Andrés Jónsson úr aðalstjórn HK, Sigurjón Sigurðsson frá ÍSÍ, Sveinbjörn Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri HK og Jón Reynir Reynisson frá ÍSÍ.  Sigurásta Sól Andrésdóttir, iðkandi í HK, heldur á fána Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ með Jóni Reyni.

„Fyrir Handknattleiksfélag Kópavogs skiptir miklu máli að uppfylla skilyrði Fyrirmyndarfélaga ÍSÍ. Viðurkenningin er ákveðinn gæðastimpill á starf félagsins í heild. Það er mjög gleðilegt að fá þessa viðurkenningu og erum við stolt af henni“, sagði Sveinbjörn Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri HK af þessu tilefni.