Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
7

Vilt þú vinna sem svæðisfulltrúi að eflingu íþróttastarfs á Austurlandi?

06.02.2026

 

Vilt þú vinna sem svæðisfulltrúi að eflingu íþróttastarfs á Austurlandi?

 

ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi og samskiptum til að taka þátt í að efla íþróttastarf á Austurlandi.

Um tímabundið starf er að ræða frá mars/apríl 2026 og til næstu 8 mánaða. Möguleiki er á framtíðarstarfi í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA).

Frestur til að sækja um starfið er til miðnættis 15. febrúar næstkomandi.

 

Sextán svæðisfulltrúar vinna á átta starfsstöðvum um allt land. Tveir svæðisfulltrúar eru á hverju svæði. Tveir eru á Austurlandi en einnig er teymisvinna um allt land.

Starfsfólk svæðastöðva tekur þátt í að skapa tækifæri og þróa íþróttaumhverfið, með sérstakri áherslu á fyrir börn og ungmenni.

Starfsemi svæðastöðva byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði. 

 

Svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna gerir eftirfarandi:

    Vinnur að eflingu íþróttastarfs á sínu svæði og með öðrum svæðisfulltrúum á landsvísu.

    Vinnur að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.

    Vinnur að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum á sínu svæði og á landsvísu.

    Bætir almenna umgjörð í kringum íþróttastarf.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

    Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingi með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.

    Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.

    Háskólamenntun sem nýtist í starfi og samstarf við sveitarfélög er kostur.

Umsækjandi þarf að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.

 

Ítarlegar upplýsingar og umsóknir á Alfreð:

Sækja um á Alfreð

Fyrirspurnir má senda í tölvupósti á andri@isi.is eða audur@umfi.is