Góð þátttaka á viðburðinum Raddir ungs fólks á Austurlandi
10.03.2026
Viðburðurinn Raddir ungs fólks fór fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum síðastliðinn föstudag. Hann var haldinn í kjölfar sameiginlegs fundar íþróttahéraðanna á Austurlandi og svæðisstöðva daginn áður.
ÍSÍ og UMFÍ stóðu að viðburðinum í samstarfi við ungmennaráð UMFÍ og svæðisstöð íþróttahéraðanna á Austurlandi. Karen Hulda Finnsdóttir, fulltrúi í Ungmennaráði UMFÍ, tók þátt í fundinum.
Mjög góð þátttaka var á viðburðinum þar sem hópur ungs fólks mætti auk fulltrúa úr íþróttahreyfingunni og stjórnsýslunni á Austurlandi. Forystufólk ÍSÍ og UMFÍ tók jafnframt virkan þátt í umræðunum.Ólafur Stefánsson opnaði viðburðinn með erindi þar sem hann lagði áherslu á að þótt fólk tapi í keppnum eða öðrum áskorunum skipti mestu máli að tapa ekki hjartanu.
Að því loknu tóku ungmenni á aldrinum 15–25 ára þátt í kaffihúsaspjalli með ráðafólki um málefni tengd íþróttastarfi. Þau höfðu margt fram að færa og verða niðurstöður umræðnanna meðal annars nýttar í sameiginlega stefnumótun íþróttahreyfingarinnar.
Myndir tók Gunnar Gunnarsson.






