Lausanne 2020 - Risasvig pilta

Gauti Guðmundsson lauk keppni í 51. sæti á tímanum 1:01,32 og var 6,76 sek á eftir Adam Hofstedt frá Svíþjóð sem sigraði á 54,56 sek. Í öðru sæti var Rok Aznoh frá Slóveníu sem var 0,06 sek. frá fyrsta manni og í því þriðja Luc Roduit frá Sviss.
Keppni í risasvigi er ein umferð og voru 63 piltar skráðar til leiks. 57 þeirra luku keppni.
Frekari upplýsingar má finna hér á heimasíðu leikanna og hér á heimasíðu FIS.