Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
International Day of Sport for Development and Peace
Að stjórna íþróttafélagi - Ekkert mál ? á Vimeo
Forseti ÍSÍ í heimsókn hjá UMSK
Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ ásamt föruneyti heimsótti starfssvæði Ungmennasambands Kjalarnesþings - UMSK, 29. mars síðastliðinn. Fundað var með fulltrúum stjórnar UMSK, fulltrúum íþrótta- og ungmennafélaga innan UMSK og íþróttafulltrúum sveitarfélaganna á starfssvæði UMSK. Fundurinn fór fram í stórglæsilegri íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Valdimar Leó Friðriksson formaður UMSK kynnti starfsemi UMSK og íþróttafulltrúarnir Sigurður Guðmundsson, Mosfellsbæ, Jón Júlíusson, Kópavogi, Haukur Geirmundsson, Seltjarnarnesi og Kári Jónsson, Garðabæ kynntu uppbyggingu íþróttamannvirkja og framtíðarsýn í sveitarfélögunum. Mikil og blómleg starfsemi er í félögum innan vébanda UMSK en þar er m.a. að finna nokkur af stærstu fjölgreinafélögum landsins. Sveitarfélögin á svæði UMSK eiga hrós skilið fyrir glæsilega uppbyggingu íþróttamannvirkja og góðan stuðning við íþróttastarf. Forseti ÍSÍ ávarpaði fundinn og afhenti formanni UMSK bækur og borðfána ÍSÍ að gjöf. Að lokinni dagskrá var íþróttamiðstöðin skoðuð.Benedikt Jóhannsson sæmdur Silfurmerki ÍSÍ
Ársþing Ungmennasambands Austurlands var haldið í Grunnskólanum á Reyðarfirði 2. apríl síðastliðinn í umsjón Umf. Vals. Til þingsins mættu um 60 þingfulltrúar frá 24 félögum auk gesta. Gunnar Gunnarsson var endurkjörinn formaður en auk hans eru Jósef Auðunn Friðriksson, Auður Vala Gunnarsdóttir, Pálína Margeirsdóttir og Benedikt Jónsson í stjórn sambandsins.Breytingar á Ól í Tókýó 2020
Námskeið á Norðurlöndum
Málstofan Veðjað á rangan hest
Föstudaginn 31. mars mun lagadeild HR standa fyrir málstofunni Veðjað á rangan hest um hagræðingu úrslita í íþróttum. Málstofan fer fram í stofu V101 og stendur frá 12:00-14:00. Kynntar verða niðurstöður tveggja rannsókna og svo munu sérfræðingar úr menntamála- og innanríkisráðuneytunum flytja erindi. Málstofunni lýkur með pallborði sem fyrirlesararnir taka þátt í ásamt þeim Líneyju Rut Halldóttur framkvæmdastjóra ÍSÍ og Þorvaldi Ingimundarsyni KSÍ. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
LA eða París 2024?
Tryggvi endurkjörinn formaður AKÍS
Ársþing Akstursíþróttasambands Íslands fór fram 18. mars síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Tryggvi M. Þórðarson gaf áfram kost á sér sem formaður sambandsins og var hann sjálfkjörinn. Í stjórn sitja áfram Einar Gunnlaugsson, Sigurður Gunnar Sigurðsson, Jón Bjarni Jónsson, Ragnar Róbertsson og Helga Katrín Stefánsdóttir. Torfi Arnarson var auk þess kosinn í stjórn til tveggja ára.