Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Ársþing ÍSS - Ný stjórn
20. Ársþing Skautasambands Íslands fór fram í Borgarnesi á B59 Hóteli sl. helgi. Þingforseti var Valdimar Leó Friðriksson formaður UMSK. Heba Finnsdóttir var kosin þingritari. Farið var yfir skýrslu stjórnar, ársuppgjör og reikningar samþykktir. Gunnar Bragason, gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ, var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.
Ný stjórn hjá HSÍ
Hjón fengu heiðursviðurkenningar á þingi UÍA
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) hélt ársþing sitt á Stöðvarfirði laugardaginn 6. apríl sl. Alls sóttu 46 þingfulltrúar þingið að þessu sinni og var jákvætt andrúmsloft ríkjandi í þingstörfum öllum. ÍSÍ veitti þeim hjónum Birni Hafþóri Guðmundssyni og Hlíf Bryndísi Herbjörnsdóttur heiðursviðurkenningar á þinginu, Björn Hafþór fékk Gullmerki ÍSÍ og Hlíf Silfurmerki ÍSÍ. Þau hjónin hafa unnið mikið og fórnfúst starf í þágu íþrótta, bæði hjá UÍA og einnig aðildarfélögunum Súlunni á Stöðvarfirði og Neista á Djúpavogi. Björn Hafþór var því miður fjarverandi en Hlíf tók við heiðursviðurkenningunum fyrir hönd þeirra hjóna. Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og voru þær allar samþykktar. Auk þess var skipulögð hópavinna þar sem fram fóru umræður um fimm mismunandi mál er snerta íþróttastarfið innan UÍA. Umræður voru líflegar og stjórn UÍA fékk niðurstöður þeirra til úrvinnslu á komandi misserum. Gunnar Gunnarsson hlaut kosningu til áframhaldandi formannssetu hjá UÍA með lófaklappi. Þingforseti var Sif Hauksdóttir og stýrði hún þinginu af röggsemi. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.Allir þingfulltrúar mættir á þing USAH
Ungmennasamband Austur – Húnvetninga (USAH) hélt ársþing sitt sunnudaginn 7. apríl sl. að Húnavöllum. Vel var mætt til þings þar sem allir þingfulltrúar frá virkum aðildarfélögum sem rétt höfðu til setu á þinginu voru mættir, alls 35 talsins. Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og má þar nefna tillögu um endurskoðun stefnumótunar USAH. Tillagan var samþykkt og sem viðbót við tillöguna beindi þingið því til USAH að skoða vel möguleika á umsókn til ÍSÍ um viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Slík viðurkenning og þau atriði sem uppfylla þarf væru í raun hluti af góðri stefnumótun fyrir USAH. Virkilega góður andi var ríkjandi á þinginu og mikill samhljómur um starfið framundan. Rúnar Aðalbjörn Pétursson var kjörinn til áframhaldandi formannssetu með lófaklappi. 1. þingforseti var Pétur Pétursson og 2. þingforseti Guðrún Sigurjónsdóttir og stýrðu þau þinginu af þekkingu og öryggi. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri. Kennsla um íþróttahreyfinguna á Hólum
Skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri var með kennslu um íþróttahreyfinguna og helstu stefnur hennar fyrir nemendur Hestafræðideildar Háskólans á Hólum 5. apríl sl. Kennslan er liður í samstarfi ÍSÍ, Hólaskóla og Landssambands hestamannafélaga (LH) hvað varðar þjálfaramenntun og mat á henni. Farið var yfir uppbygginu og tilgang ÍSÍ, hlutverk sambandsins og sambandsaðila ásamt stefnum um þjálfaramenntun og barna- og unglingaíþróttir svo eitthvað sé nefnt.
Heiðrún Sandra endurkjörin formaður UDN
98. Þing Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) var haldið 2. apríl sl. í Grunnskólanum á Reykhólum. Garðar Svansson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og flutti kveðjur Lárusar L. Blöndal forseta ÍSÍ, framkvæmdastjórnar og starfsfólks ÍSÍ.
Nýjar ÍSÍ fréttir
Skilafrestur framboða til kjörs framkvæmdastjórnar ÍSÍ
74. Íþróttaþing ÍSÍ fer fram í Gullhömrum Grafarholti í Reykjavík dagana 3.-4. maí nk. Samkvæmt 11. grein laga ÍSÍ skulu tilkynningar um framboð til forseta ÍSÍ og framkvæmdastjórnar ÍSÍ berast til kjörnefndar Íþróttaþings eigi síðar en þremur vikum fyrir þingið, þ.e. 12. apríl næstkomandi.Bannlisti WADA
Bannlisti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA Prohibited List) er endurskoðaður á hverju ári og tók ný útgáfa gildi 1. janúar sl. Bannlisti WADA gildir innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Listann í heild sinni má nálgast með því að smella á hlekk hér fyrir neðan og einnig er samantekt (á ensku) á helstu breytingum og viðbætum frá fyrra ári.
Heiðrun á ársþingi USÚ
Ársþing USÚ fór fram í Heklu, nýju félagsheimili Umf. Sindra miðvikudaginn 27. mars. Þingið sóttu 33 fulltrúar frá flestum aðildarfélögum sambandsins.Búið að úthluta úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2018
Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2018. Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. Nemandi úr HÍ í starfsnámi
Jón Fannar Árnason, nemi í tómstunda og félagsmálafræðum við Háskóla Íslands, var í vettvangsnámi hjá ÍSÍ í þrjár vikur í mars sl. Hann kynnti sér skipulag og helstu verkefni innan ÍSÍ, ásamt því að vinna verkefni fyrir Þróunar- og fræðslusvið ÍSÍ og Almenningsíþróttasvið ÍSÍ. Jón tók þátt í viðburðum Þróunar- og fræðslusviðs á tímabilinu, svo sem málþingum og hádegisfundum. ÍSÍ þakkar Jóni fyrir að hafa áhuga á því að kynna sér stafsemi ÍSÍ og óskar honum velfarnaðar í námi sínu.