Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
USVH stefnir á að verða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ
78. Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga (USVH) var haldið miðvikudaginn 20. mars sl. í Félagsheimilinu á Hvammstanga. UMF. Kormákur sá að þessu sinni um framkvæmd þingsins. Góð mæting var á þingið en það mættu fulltrúar frá öllum aðildarfélögum, samtals 27 þingfulltrúar af þeim 32 sem áttu rétt til setu á þinginu. Miklar og góðar umræður voru á þinginu um starf sambandsins.
Gígja og Ingvar sæmd Gullmerki ÍSÍ
ÍSÍ sæmdi Gígju Gunnarsdóttur, ritara stjórnar ÍBR og Ingvar Sverrisson, formann ÍBR, Gullmerki ÍSÍ á 49. þingi Íþróttabandalags Reykjavíkur þann 20. mars sl. Hafsteinn Pálsson ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ afhenti Gígju og Ingvari Gullmerki ÍSÍ.
Vel mætt á ársþing ÍBR
49. þing Íþróttabandalags Reykjavíkur fór fram í Laugardalshöll 20. - 21. mars sl. Góð mæting var á þingið en um 70 fulltrúar frá 29 félögum og ráðum tóku þátt í þingstörfum. Ingvar Sverrisson formaður ÍBR setti þingið en að setningarræðu lokinni ávörpuðu þau Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, og Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, þingið. Báðir gestirnir þökkuðu íþróttafélögunum í Reykjavík fyrir þeirra frábæra starf og hvöttu þau áfram til góðra verka. Góðar umræður voru um fyrirliggjandi þingtillögur í nefndarfundunum á miðvikudagskvöldið og voru allar tillögur samþykktar samhljóða á seinni þingdeginum.Ársþing UMSE
Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) hélt 98. ársþing sitt í Þelamerkurskóla fimmtudaginn 21. mars sl. Þingið var ágætlega sótt en 34 þingfulltrúar voru mættir af 52 mögulegum. Þingforsetar voru þeir Árni Arnsteinsson og Ásgeir Már Hauksson og stjórnuðu þeir þinginu af röggsemi. Fjöldi tillagna lá fyrir þinginu og voru þær allar samþykktar, sumar eftir lítilsháttar breytingar eða viðbætur. Mesta umræðu fékk tillaga um reglugerð vegna vals á íþróttamanni UMSE. Meðal annarra tillagna má nefna hvatningu til aðildarfélaga UMSE um að gerast Fyrirmyndarfélög ÍSÍ hið fyrsta. UMSE var einmitt fyrsta íþróttahéraðið til að hljóta viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Sigurður Eiríksson verður áfram formaður UMSE. Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru þeir Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri. Svefninn dýrmætur
Í gær, miðvikudaginn 20. mars, fór fram hádegisfundur um svefn og íþróttir í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Dr. Erlingur Jóhannesson fjallaði um mikilvægi svefns og hvað á sér stað í líkamanum á meðan við sofum. Hann fjallaði m.a. um líkamsklukkuna og hormónið melatónín sem sér um að okkur syfjar á kvöldin og við séum vel vakandi á daginn. Dr. Sigríður Lára Guðmundsdóttir kynnti niðurstöður rannsókna á svefnvenjum ungra íslenskra sundmanna. Niðurstöðurnar sýna að ungir íslenskir sundmenn sofa alltof lítið að meðaltali og sérstaklega þegar að það eru morgunæfingar. Hrafnhildur Lúthersdóttir afrekskona í sundi talaði um sína reynslu af morgunæfingum í sundi og agann sem hún þurfti að hafa til að fara snemma að sofa. Fundurinn var haldinn í samstarfi ÍSÍ og deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda innan menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Vel var mætt á fundinn, en hann var einnig sýndur á fésbókarsíðu ÍSÍ.Gull- og Silfurmerki ÍSÍ afhent á þingi KKÍ
53. Körfuknattleiksþing KKÍ fór fram sl. laugardag í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á þinginu sæmdi ÍSÍ fjóra einstaklinga heiðursmerkjum ÍSÍ. Jóhanna M.Hjartardóttir og Hilmar Júlíusson fengu Silfurmerki ÍSÍ og þeir Páll Kolbeinsson og Hannes S. Jónsson Gullmerki ÍSÍ. Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, afhenti viðurkenningarnar.
53. Körfuknattleiksþing KKÍ
Síðastliðinn laugardag fór fram 53. Körfuknattleiksþing KKÍ en þingið fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hannes S. Jónsson var endurkjörinn formaður en hann var einn í framboði. Stjórn KKÍ var sjálfkjörinn en úr henni gengu Páll Kolbeinsson og Eyjólfur Þór Guðlaugsson. Nýir stjórnarmenn voru kosnir þeir Guðni Hafsteinsson, Herbert Arnarson og Jón Bender. Stjórnin er því skipuð þeim Birnu Lárusdóttur, Einari Karli Birgissyni, Erlingi Hannessyni, Ester Öldu Sæmundsdóttur, Guðbjörgu Norðfjörð, Guðna Hafsteinssyni, Hannesi S. Jónssyni, Herberti Arnarsyni, Lárusi Blöndal og Jóni Bender.
Viggó Jónsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ
Á ársþingi Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS), sem fór fram 19. mars sl. sæmdi ÍSÍ Viggó Jónsson Gullmerki ÍSÍ, en Viggó hefur unnið afar mikið og fórnfúst starf í tengslum við íþróttir í héraði til fjölda ára. Ingi Þór Ágústsson, úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, afhenti Viggó viðurkenninguna. Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru þeir Ingi Þór og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
UMSS Fyrirmyndarhérað ÍSÍ
Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) var haldið í Húsi frítímans á Sauðárkróki þriðjudaginn 19. mars síðastliðinn. Alls voru 43 þingfulltrúar mættir af 60 mögulegum. Fjölmargar tillögur lágu fyrir þinginu og voru þær allar samþykktar, sumar með áorðnum breytingum í nefndum eða í þingsal. Stjórn UMSS var öll kjörin áfram til starfa fyrir sambandið.
30 ára afmæli Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands leitar að fólki og efni í heimildarþátt sem framleiddur verður í tilefni af því að í ár verður Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ haldið í þrítugasta skipti. ÍSÍ leitar að aðilum sem ættu erindi í þáttinn sem viðmælendur, einhverjum sem hafa tekið þátt í mörg ár, í gegnum nokkrar kynslóðir eða annað sem merkilegt þykir.
Hádegisfundur í dag - Svefn og íþróttir
Hádegisfundur um svefn og íþróttir fer fram í dag miðvikudaginn 20. mars frá kl.12:00 - 13:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Rannsóknir á svefni ungmenna á undanförnum árum hafa gefið vísbendingar um að þau séu ekki að sofa nægjanlega mikið. Hvernig standa þá krakkar sem eru að mæta á morgunæfingar hjá íþróttafélögum er kemur að gæðum svefns? Af hverju er svona mikilvægt að ná fullum svefni? Fundurinn er opinn og er haldinn í samstarfi ÍSÍ og deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda innan menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Dr. Erlingur Jóhannesson mun fjalla um mikilvægi svefns og hvað á sér stað í líkamanum á meðan við sofum. Dr. Sigríður Lára Guðmundsdóttir kynnir niðurstöður rannsókna á svefnvenjum ungra íslenskra sundmanna. Hrafnhildur Lúthersdóttir mun svo veita innsýn og reynslu afrekssundkonu á málefnið.
Opið verður fyrir umræður í lokin. Hádegisfundinum verður streymt á facebook síðu ÍSÍ.