Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
120 manns á héraðsþingi HSK
Ársþing HSH - Gull- og Silfurmerki ÍSÍ veitt
79. þing Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH) fór fram í Grunnskóla Stykkishólms þann 14. mars sl. 32 fulltrúar sátu þingið frá 11 félögum af 13. Meðal þess sem var rætt á þinginu var hlutverk og tilgangur HSH. Góðar umræður sköpuðust á þinginu og samþykkt að halda vinnustofu í haust með aðildarfélögum, sveitarfélögunum og íbúum á sambandssvæðinu um hlutverk og verkefni í samræmi við umræður á þinginu.
Jafnréttisáætlanir - Íþróttafélög til fyrirmyndar
Jafnréttisstofa hefur eftirlit með framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Eftirlitið felst m.a. í innköllun jafnréttisáætlana þar sem m.a. þarf að koma fram hvernig staðið er að forvörnum til að fyrirbyggja kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni.
Málþing um afreksíþróttir
Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ stóð fyrir málþingi um afreksíþróttir miðvikudaginn 13. mars s.l.Dwight Phillips hélt flottan fyrirlestur
Fyrirlestur í hádeginu í dag
Í dag, föstudaginn 15. mars, kl. 12:10 í stofu V101 í Háskólanum í Reykjavík mun Dwight Phillips, einn fremsti frjálsíþróttamaður heims fyrir nokkrum árum, halda fyrirlestur um þær aðferðir sem hann beitti til að verða heims- og Ólympíumeistari. Hann mun tala um þætti eins og að trúa á sjálfan sig, að fylgja áætlun, að finnast vænt um markmiðin sín, að vera heiðarlegur við sjálfan sig, að fjárfesta í sjálfum sér, að vera dugleg/ur og aldrei að gefast upp. Hann heldur því fram að þeir sem nái árangri einblíni á ákveðna þætti til að ná markmiðum sínum. Fyrirlesturinn er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Svefn og íþróttir - Hádegisfundur
Hádegisfundur um svefn og íþróttir fer fram miðvikudaginn 20. mars frá kl.12:00 - 13:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Rannsóknir á svefni ungmenna á undanförnum árum hafa gefið vísbendingar um að þau séu ekki að sofa nægjanlega mikið. Hvernig standa þá krakkar sem eru að mæta á morgunæfingar hjá íþróttafélögum er kemur að gæðum svefns? Af hverju er svona mikilvægt að ná fullum svefni? Fundurinn er opinn og er haldinn í samstarfi ÍSÍ og deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda innan menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Dr. Erlingur Jóhannesson mun fjalla um mikilvægi svefns og hvað á sér stað í líkamanum á meðan við sofum. Dr. Sigríður Lára Guðmundsdóttir kynnir niðurstöður rannsókna á svefnvenjum ungra íslenskra sundmanna. Hrafnhildur Lúthersdóttir mun svo veita innsýn og reynslu afrekssundkonu á málefnið.
Karatedeild Ungmennafélagsins Aftureldingar Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Karatedeild Ungmennafélagsins Aftureldingar fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á aðalfundi deildarinnar í Mosfellsbæ 11. mars sl. Það var Þráinn Hafsteinsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti deildinni viðurkenninguna. Aðalstjórn félagsins stefnir að því að gera allar deildir að Fyrirmyndardeildum og þar með félagið í heild sinni að Fyrirmyndarfélagi ÍSÍ.100 dagar til Evrópuleika
Í dag eru 100 dagar þar til Evrópuleikarnir 2019 verða settir. Þeir fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC).
Ársþing HSÞ - Jónas endurkjörinn
12. ársþing HSÞ var haldið í Skjólbrekku í Mývatnssveit sunnudaginn 10. mars sl. Alls voru 60 fulltrúar af 80 mættir á þingið en fjöldi mála lá fyrir þinginu. Miklar umræður sköpuðust um hluta tillagna en stærstu tillögurnar voru samþykktar án athugasemda eða með litlum breytingum. Þar má nefna nýjar siðareglur HSÞ og aðildarfélaga, nýja stefnu stjórnar sem ber nafnið „Æfum alla ævi“ og viðbragðsáætlun og verklagsreglur vegna aga-, ofbeldis-, og kynferðisbrota.
500 dagar til Ólympíuleika í Tókýó
Fyrirlestur Ólympíumeistara í HR
Föstudaginn 15. mars nk. kl. 12:10 í stofu V101 í Háskólanum í Reykjavík mun Dwight Phillips, einn fremsti frjálsíþróttamaður heims fyrir nokkrum árum, halda fyrirlestur um þær aðferðir sem hann beitti til að verða heims- og Ólympíumeistari. Hann mun tala um þætti eins og að trúa á sjálfan sig, að fylgja áætlun, að finnast vænt um markmiðin sín, að vera heiðarlegur við sjálfan sig, að fjárfesta í sjálfum sér, að vera dugleg/ur og aldrei að gefast upp. Hann heldur því fram að þeir sem nái árangri einblíni á ákveðna þætti til að ná markmiðum sínum.