Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Nýtt íþróttahús vígt á Egilsstöðum
Laugardaginn 12. september var haldin formleg vígsla á nýrri viðbyggingu sem Íþróttafélagið Höttur sá um að byggja í samstarfi við Fljótsdalshérað. Í nýbyggingunni er 1000 fermetra salur, útbúinn fyrir fimleikaiðkun ásamt fjórum hlaupabrautum og stökkgryfju fyrir frjálsíþróttir.Dagur í lífi badmintonkonu
Arna Karen Jóhannsdóttir, landsliðskona í badminton, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ á morgun, þriðjudag. Arna Karen hefur verið ein af okkar fremsta badmintonfólki síðustu ár þar sem hún hefur spilað lykilhlutverk í bæði unglinga- og fullorðinslandsliðum Íslands. Síðustu tvö ár hefur hún spilað í Danmörku og vann nýlega það afrek að vera valin badmintonkona ársins hjá klúbbnum sínum, Ikast FS. Nú er Arna Karen að byrja sitt þriðja tímabil í Danmörku, auk þess sem hún var að hefja nám í íþróttafræði við háskólann í Árósum.
Íþróttavika Evrópu hefst 23. september
Íþróttavika Evrópu fer fram 23. – 30. september næstkomandi í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir verkefninu hér á landi en markmiðið er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er sérstök áhersla lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
Göngum í skólann 2020
Göngum í skólann fer fram um allt land þessa dagana. ÍSÍ hvetur starfsfólk skóla, foreldra og nemendur til að tileinka sér virkan ferðamáta til og frá skóla strax í upphafi skólaárs. Skráning í Göngum í skólann er í fullum gangi en nú þegar hafa 73 skólar skráð sig til þátttöku í verkefninu. Hægt er að skrá skólann til þátttöku hér á vefsíðu verkefnisins þar til 7. október sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn.
Vilt þú verða þjálfari?
Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 21. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Hamraskóli og Síðuskóli í Ólympíugír
Grunnskólar á Íslandi taka nú margir hverjir þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ þessa dagana.
Reykjavíkurborg styður við íþrótta- og æskulýðsfélög vegna Covid-19
Borgarráð samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um að veita íþrótta- og æskulýðsfélögum í Reykjavík sérstakan stuðning upp á 135 milljónir króna vegna tekjutaps sem skapast hefur vegna kórónuveirufaraldursins.Sigmundur Hermundsson heiðraður
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, sæmdi í gær Sigmund Hermundsson Gullmerki ÍSÍ, samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar ÍSÍ, fyrir góð störf í þágu íþrótta á Íslandi. Afhending viðurkenningarinnar fór fram á heimili Sigmundar í Garðabæ.Niðurgreiðsla á innanlandsflugi fyrir íbúa á landsbyggðinni
„ÍSÍ fagnar því að niðurgreiðslur á innanlandsflugi fyrir fólk af landsbyggðinni séu loksins í höfn. Ferðakostnaður íþróttahreyfingarinnar og kostnaður heimilanna á landsbyggðinni í tengslum við þátttöku í íþróttum er afar íþyngjandi og þetta er stórt skref í rétta átt til meiri jöfnuðar hvað þetta varðar. Þær niðurgreiðslur sem Loftbrú veitir, ásamt framlagi ríkisins í Ferðasjóð íþróttafélaga og afsláttarkjörum sem Air Iceland Connect býður íþróttahreyfingunni, er mikilvægur stuðningur við þátttöku landsbyggðarinnar í íþróttastarfinu. Það er einnig mikilvægt að tekið er tillit til námsfólks og barna sem eiga tvö heimili.“ sagði Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ í dag þegar fréttir um lægri innanlandsfargjöld til íbúa á landsbyggðinni bárust í hús.Uppbygging á svæði Íþróttafélags Reykjavíkur
Laugardaginn 5. september sl. var knatthús með frjálsíþróttaaðstöðu tekið í notkun í Mjóddinni, á starfssvæði Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR). Við það tækifæri tóku Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ingigerður H. Guðmundsdóttir formaður ÍR fyrstu skóflustunguna að öðru íþróttahúsi, suðaustan við knatthúsið. Ársþing UÍA haldið í gegnum fjarfundabúnað
Dagur í lífi skylmingamanns
Andri Nikolaysson Mateev, margfaldur Íslandsmeistari í skylmingum og lykilmaður í landsliði Íslands, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ í dag. Hann vann það einstaka afrek á síðasta ári að verða Norðurlandameistari og Íslandsmeistari í karlaflokki, í liðakeppni og í flokki 20 ára og yngri. Hann hefur unnið öll mót sem haldin hafa verið á Íslandi síðastliðin ár ásamt því að ná 8. sæti á Viking Cup 2018, sterku heimsbikarmóti sem haldið var á Íslandi. Nú einbeitir hann sér að aðalmarkmiði sínu sem er að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta ári.