Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Transbörn og íþróttir í Reykjavík
Tilkynning frá Lyfjaeftirliti Íslands
Lyfjaeftirlit Íslands hefur tekið í notkun uppljóstrunarkerfi (e. whistleblower solution) til þess að stuðla betur að heiðarlegu og öruggu keppnis- og æfingaumhverfi í íþróttum. Kerfið er eingöngu ætlað til þess að tilkynna um möguleg brot á lyfjareglum í íþróttum, skv. Lögum ÍSÍ um lyfjamál og Alþjóðalyfjareglunum. Það felur í sér m.a.:
1. maí - Lokað í dag
Í dag, þann 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, er lokað á skrifstofu ÍSÍ. Skrifstofan opnar á mánudaginn 4. maí.450 milljón króna fjárframlag til íþróttastarfs
Fram kemur í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu í dag að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands verði falið að úthluta 450 milljóna kr. stuðningi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar til þess að mæta áhrifum COVID-19. Samningur þess efnis var undirritaður í gær. Stuðningur þessi byggir á þingsályktun um fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins, sem samþykkt var á Alþingi þann 30. mars sl.
Setningarhátíð Hjólað í vinnuna 2020
Hjólað í vinnuna verður sett með hátíðlegum hætti miðvikudaginn 6. maí nk. kl. 8:30 í Þróttaraheimilinu í Laugardal. Flutt verða stutt og hressileg hvatningarávörp og mun uppistandarinn Jóhann Alfreð Kristinsson halda uppi stemningu. Setningarhátíð verkefnisins er aðeins fyrir boðsgesti.
UMFÍ frestar tveimur mótum
Stjórn Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hefur ákveðið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ og Íþróttaveislu UMFÍ sem halda átti í júní í sumar. Nýjar dagsetningar verða tilkynntar um leið og þær liggja fyrir á vefsíðu UMFÍ, www.umfi.is. Unglingalandsmót UMFÍ er hins vegar enn á dagskrá og fer fram á Selfossi um verslunarmannahelgina.Minnst 90% reykvískra íþróttafélaga verði Fyrirmyndarfélög ÍSÍ
Ný stefna í íþróttamálum Reykjavíkur sem gildir til ársins 2030 var samþykkt í borgarstjórn þann 21. apríl sl. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að stefnan hafi verið í vinnslu í rúmt ár og hafi borgaryfirvöld verið í nánu samstarfi við íþróttahreyfingar í borginni.
Andorra hættir við Smáþjóðaleikana 2021
Í síðustu viku tilkynnti Ólympíunefnd Andorra að ekki yrði hægt að halda Smáþjóðaleikana árið 2021 í Andorra, eins og fyrirhugað var. Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Sáttmáli um gagnkvæman skilning atvinnubílstjóra og hjólreiðafólks í umferðinni kom út í maí 2019. Markmið sáttmálans er að auka gagnkvæman skilning og koma í veg fyrir slys og tryggja öryggi allra vegfarenda. Samhliða fjölgun hjólreiðafólks undanfarin ár hefur hjólreiðaslysum einnig fjölgað, svo þörfin fyrir sátt og samlyndi ólíkra hópa í umferðinni hefur aldrei verið brýnni. Sáttmálinn inniheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra eins og til dæmis um blinda svæði bílstjórans og hættuna fyrir hjólreiðafólk að fara yfir gatnamót. Fjölmörg fyrirtæki og hagaðilar hafa nú þegar innleitt sáttmálann og notað við fræðslu, þjálfun og öryggismiðlun sinna starfsmanna.
Íþróttaiðkun trans barna
Út er kominn bæklingur um íþróttaiðkun trans barna, en á síðustu árum hefur þó nokkur fjöldi barna á öllum aldri verið að stíga fram sem trans. Mikilvægt er að huga vel að aðgengi þessa hóps að íþróttastarfi, taka vel á móti þeim og huga vel að þeirra sérstöðu. Bæklingurinn er hugsaður til upplýsinga fyrir foreldra, þjálfara og aðra sem að íþróttastarfinu koma. Bæklingurinn var unnin m.a. í samstarfi við Samtökin 78, Trans Ísland og Trans vini. Bæklingurinn er fyrst og fremst leiðbeinandi og tekur til barna að 12 ára aldri eða fyrir kynþroska. Bæklinginn má nálgast í prentaðri útgáfu á skrifstofu ÍSÍ og í rafrænni útgáfu á vefsíðu ÍSÍ.
Opnunartími ÍSÍ
Skrifstofa ÍSÍ verður opin frá 10-14 virka daga í þessari viku, en lokað verður föstudaginn 1. maí.
Hjólað til betri heilsu
Á vefsíðu Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is, er að finna ýmsan skemmtilegan fróðleik sem kann að nýtast þátttakendum í verkefninu Hjólað í vinnuna, sem hefst þann 6. maí nk. Meðal annars er þar hægt að sjá „Göngu- og hjólastígakort“, en þar er að finna tengingu inn á borgarvefsjá og aðra góða vefi þar sem hægt er að finna góðar hjólaleiðir. Einnig er hægt að lesa sér til um umferðaröryggi hjólreiðafólks, öryggisbúnað og fleira.