Fréttir frá Sumarleikum ungmenna
Þátttakendur á Ólympíuleikum ungmenna - Nanjing 2014
Nanjing 2014 - Rafræna kyndilhlaupið á Íslandi
Í tilefni af Ólympíuleikum ungmenna var ólympíueldurinn tendraður við hátíðlega athöfn þann 30. apríl í Aþenu í Grikklandi. Á sama tíma kom út nýtt smáforrit fyrir tölvur og síma sem kallast Rafræna kyndilhlaupið. Í leiknum geta kyndilberar farið um 204 lönd og svæði sem taka þátt í leikunum í ágúst á 98 dögum. Hugmyndin er sú að veita ungmennum út um allan heim það tækifæri að vera kyndilberar, að þau hjálpist að við að fara með eldinn í kringum heiminn og aftur til Nanjing og breiði þannig út boðskap ólympíuandans.Ólympíuleikar ungmenna - Nanjing 2014
Í ágúst fara fram Ólympíuleikar ungmenna í borginni Nanjing í Kína.  Ísland mun að þessu sinni eiga fulltrúa í hópi ungra sendiherra á leikunum, eða Young Ambassador og eru það 120 lönd sem fá að tilnefna slíkan aðila.
Fulltrúi Íslands verður Bjarki Benediktsson en hann hefur m.a. komið að þjálfun í knattspyrnu og stundar nú nám í Háskólanum í Reykjavík.