Fréttir
Samantekt frá öðrum degi Smáþjóðaleika
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik vann viðureign sína gegn Möltu í dag, 80:76, eftir framlengingu. Stigahæstur í dag var Elvar Már Friðriksson með 33 stig. Tók hann 7 fráköst. Kristinn Pálsson var með 17 stig, þar af 4 af 8 í þriggja og Gunnar Ólafsson bætti við 9 stigum og Dagur Kár Jónsson var með 7 stig.
Sýndu mikinn karakter í framlengingu
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik vann viðureign sína gegn Möltu í dag, 80:76. Íslendingarnir byrjuðu vel og voru 22:14 yfir eftir fyrsta leikhluta og 34:21 í hálfleik. Seint í þriðja leikhluta var Ísland 49:30 yfir en Malta setti síðustu 8 stigin og minnkaði muninn. Þeir héldu áfram að sækja í framhaldinu og voru komnir með nokkurra stiga forskot þegar rúmar þrjár mínútur lifðu af leiknum. Ísland sýndi mikinn karakter með því að koma sér inn í leikinn aftur og voru þremur stigum yfir þegar rúmar 6 sekúndur voru eftir. Malta jafnaði og lokaskot Íslands geigaði og því þurfi að framlengja.
Flott frammistaða hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik beið lægri hlut fyrir sterku liði Svartfjallalands 81:73 í öðrum leik sínum á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi í dag. Íslenska liðið átti góðan leik gegn svartfellska liðinu. Staðan var jöfn í hálfleik 35:35.
Góður dagur í sundinu
Þá er öðrum keppnisdeginum í sundi lokið á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Veðrið á keppnisstað var betra í dag, þurrt og bjart.
Dagurinn skilaði Íslendingum þrennum gullverðlaunum, einum silfurverðlaunum, tvennum bronsverðlaunum, HM lágmarki og einni bætingu á tíma auk þess sem Anton Sveinn nánast tryggði sér farseðilinn til Tókýó 2020.Guðbjörg Jóna með gull
Fyrsta keppnisdegi af þremur í frjálsíþróttum er lokið á Smáþjóðaleikunum. Íslendingar áttu tólf keppendur á þessum fyrsta keppnisdegi og hlutu þau ein gullverðlaun, þrjú silfur og eitt brons.
Hreykinn og stoltur Heiðursforseti ÍSÍ
Ellert B. Schram, Heiðursforseti ÍSÍ, er staddur á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi í boði ÍSÍ til að fylgjast með íslenska hópnum í keppni á leikunum. Þegar starfsmenn ÍSÍ hittu Ellert í dag þá var hann nýkominn í sundhöllina í Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands, til að fylgjast með keppni í sundi, eftir að hafa horft á kvennalandsliðið í blaki vinna góðan sigur á San Marínó í Budva.Ósigur í blaki karla í dag
Íslenska karlalandsliðið í blaki keppti við San Marínó á Smáþjóðaleikunum í dag. Byrjunarlið Íslands var skipað þeim Hafsteini og Kristjáni Valdimarssonum á miðjunum, Theódóri Óskari Þorvaldssyni og Ævari Frey Birgissyni á köntunum, Bjarka Benediktssyni í díó, Mána Matthíassyni í uppspil og Ragnari Inga Axelssyni í stöðu frelsingja.
Enn gert hlé á tenniskeppninni
Keppni í tennis átti að hefjast í gær, en vegna mikillar rigningar var keppni frestað. Í dag rigndi einnig og var brugðið á það ráð að þurrka vellina með svömpum. Aðstæður voru metnar reglulega yfir daginn, en seinnipartinn þótti skipuleggjendum í lagi að hefja tenniskeppnina. Rafn Kumar keppti á móti Alex Knaff frá Lúxemborg, en honum var raðað nr.2 í mótið. Rafn spilaði vel, en Knaff meiddist í leiknum og varð því að gefa leikinn. Rafn er því kominn áfram í 8 liða úrslit.
Blakstelpurnar unnu með yfirburðum
Íslenska kvennalandsliðið í blaki mætti San Marínó í dag á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Byrjunarlið Íslands var skipað þeim Jónu Guðlaugu Vigfúsdóttur og Helenu Kristínu Gunnarsdóttur á köntunum, Unni Árnadóttur og Gígju Guðnadóttur á miðjunum, Ana Maria Vidal Bouza í uppsil, Thelmu Dögg Grétarsdóttur í díó og Kristinu Apostolovu í stöðu frelsingja.
Keppni lokið í liðakeppni í borðtennis
Liðakeppni í borðtennis hélt áfram í dag. Íslenska kvennalandsliðið mætti heimakonum frá Svartfjallalandi í síðasta leik riðlakeppninnar, en eftir 3-0 tap gegn þeim er ljóst að landsliðið komst ekki upp úr riðli sínum og er því úr leik.
Fagteymi Íslands á Smáþjóðaleikunum
Smáþjóðaleikarnir fara fram um þessar mundir. Nokkrir valinkunnir aðilar annast heilbrigðisþjónustu við íslenska hópinn. Það eru þau Örnólfur Valdimarsson læknir, Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur og sjúkraþjálfararnir Unnur Sædís Jónsdóttir, Mundína Ásdís Kristinsdóttir, Sigurður Örn Gunnarsson, Halldór Fannar Júlíusson, Jóhannes Már Marteinsson og Sædís Magnúsdóttir.
Góður stuðningur frá foreldrum keppenda
Hér á Smáþjóðaleikunum er nokkur hópur foreldra og annarra ættingja sem kominn er hingað til Svartfjallalands til að fylgjast með sínu fólki á leikunum og styðja íslenska hópinn í keppni.