Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Golfklúbburinn Leynir áfram Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Golfklúbburinn Leynir fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á formannafundi Íþróttabandalags Akraness sem haldinn var á Akranesi miðvikudaginn 18. september síðastliðinn. Nikolay Mateev endurkjörinn í stjórn EFC
Kosningaþing Evrópska skylmingasambandsins (EFC) var haldið 14.- 15. september sl. í Búdapest, í Ungverjalandi. Nikolay Mateev, núverandi formaður Skylmingasamband Íslands, var þar en hann var fyrst kjörinn í framkvæmdastjórn Evrópska skylmingasambandsins (EFC) árið 2009 og hefur setið í stjórn sambandsins óslitið síðan.Sjö bjóða sig fram til forseta IOC
Kosið verður um nýjan forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) á næsta ári, nánar til tekið á ársþingi sem haldið verður 18. – 21. mars í Grikklandi. Forsetinn er kjörinn af meðlimum þingsins.Norrænn fundur um fyrirtækjaíþróttir
Norrænir fulltrúar þeirra sambanda sem sjá um fyrirtækjaíþróttir funduðu saman í Seinajoki í Finnlandi 12. – 15. september sl. Á Norðurlöndunum eru sér íþróttasambönd um fyrirtækjaíþróttir en á Íslandi falla fyrirtækjaíþróttir undir Fræðslu- og almenningsíþróttasvið Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Verkefni hjá ÍSÍ sem hafa höfðað sérstaklega til fyrirtækja eru Lífshlaupið, sem í gangi er í febrúar, og Hjólað í vinnuna, sem er í maí.Göngum í skólann fer vel af stað!
Verkefnið Göngum í skólann fer afar vel af stað en það hófst miðvikudaginn 4. september og mun það standa yfir til miðvikudagsins 2. október, sem er alþjóðlegi Göngum í skólann- dagurinn. Erla Gunnlaugsdóttir í starf svæðisfulltrúa Austurlands
Erla Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin í starf svæðisfulltrúa á svæðisstöð íþróttahreyfingarinnar á Austurlandi og myndar teymi með Jóhönnu Írisi Ingólfsdóttur, sem ráðin var fyrr í sumar.Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948
Í gær, miðvikudaginn 11. september, hélt Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður hjá RÚV og sagnfræðingur, útgáfuteiti en hann hann gaf nýverið út bókina Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948. Bókin byggir að stofninum til á BA-ritgerð Þorkels úr sagnfræði við Háskóla Íslands en það er Sögufélagið sem gefur bókina út. Fjölmenni var á svæðinu og mættu margir frá íþróttahreyfingunni, þar á meðal Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ.HAUSTFJARNÁM ÍSÍ hefst á mánudag!
Haustfjarnám á öllum stigum þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 16. september næstkomandi. Síðasti möguleiki til skráningar er 16. september. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Áhugaverður viðburður um jöfn laun og jafnrétti í íþróttum
Næstkomandi fimmtudag, 12. september, verður haldinn opinn viðburður, skipulagður af Sendiráði Íslands í París, Stjórnarráði Íslands og OECD, sem ber heitið á ensku Closing the gender play gap: Towards pay equity in sports. Paralympics lokið. Róbert Ísak og Sonja fánaberar
Paralympics lauk formlega í gær, sunnudaginn 8. september, en íslensku keppendurnar fimm höfðu þó lokið keppni áður. Lokahátíðin var stórfengleg og mikið um dýrðir á Stade du France, leikvangnum.
Fundað um fræðslu og almenningsíþróttir á Akureyri
Í tengslum við setningu Göngum í skólann í Brekkuskóla á Akureyri á miðvikudaginn 4. september og Ólympíuhlaups ÍSÍ sem haldið var í Borgarhólsskóla á Húsavík á fimmtudag 5. september, funduðu nokkrir starfsmenn ÍSÍ ásamt starfsmönnum frá Akureyrarbæ, Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA) og svæðisstöð Norðurlands eystra, síðdegis miðvikudaginn, 4. september. Ólympíuhlaup ÍSÍ var sett í Borgarhólsskóla á Húsavík
Ólympíuhlaup ÍSÍ 2024 var sett í Borgarhólsskóla á Húsavík í dag, í sól en þó nokkrum vindi. Allir nemendur skólans um 300 talsins hlupu og stóðu sig virkilega vel.